Gjafaaskjan inniheldur þrjár vörur:
Mist & Co. Makeup Brush Cleaner, Deep Clean
Mist & Co. Makeup Brush Cleaner, Daily
Mist & Co. Makeup Removing Towel
Mist & Co. Daily Makeup Brush Cleaner/Green Tea & Lime er burstahreinsir sem hentar vel til þess að þrífa bursta eftir hverja notkun. Við vitum öll að hreinir förðunarburstar stuðla að hreinni húð og tryggja silkimjúka áferð farðans.
Samanblanda af sótthreinsandi efnum og dásamlegum ilm- og ilmkjarnaolíum gera burstana þína eins og nýja og skilja þá ilmandi af mildu grænu tei og límónu.
Mist & Co. Deep Clean/Rosé burstahreinsirinn skilur eftir sig yndislegan rósailm. Deep Clean hentar vel til þess að djúphreinsa mjög óhreina bursta sem hafa ekki verið þrifnir í langan tíma og einnig til að þrífa vatnsheldan farða úr burstunum.
Samanblanda af sótthreinsandi og djúphreinsandi efnum og mýkjandi ilmolíum
Nú þarftu ekki lengur að eyða tímanum þínum í að hreinsa alla burstana þína með sápu og vatni!
Notkun Mist&Co
Fyrir bestu notkun, notaðu hreinsiklútinn ‘Removing Towel’ frá Mist & Co. Spreyjaðu 2-4 sinnum á hvern bursta með hreinsiklútinn undir og nuddaðu burstanum við hreinsiklútinn þar til burstinn verður hreinn. Endurtakið ef þörf er á. Eftir hreinsun er burstinn orðinn eins og nýr og mun þorna á mínútu.